Hæ hó kæri verkalýður! Á morgun syngja fuglar, á morgun grær grundin, á morgun skín sólin því ykkar stund er upp runnin. Ég á von á því að innflytjendur og chav-arar séu hvað fjölmennastir í verkalýðsstétt nútímans, en svona plebbar með fartölvu sem ganga í skóla einsog ég séu nú ekkir alveg gjaldgengir í göngurnar. Hvað þá í vöfflukaffið á eftir.
Til skýringar þá er chav-fólkið það sem við könnusmt við sem "white trash"-liðið westan hafs, Vicky Pollard og og fleiri góðir. Nú svo eru það innflytjendurnir sem Breski þjóðernisflokkurinn vill ólmur senda úr landi, ekki bara innflytjendurna sjálfa heldur einnig börn þeirra barnabörn og barnabarnabörn, í stuttu máli sagt allar kynslóðir síðan að þau stigu fæti á þetta guðsvolaða land. Þetta á vitanlega einungis við um fólk sem er dökkt á hörund því það sést jú ekki eins mikið á okkur bleiknefjunum.
En það vill svo til að ég þekki nokkrar manneskjur sem eru dökkar á hörund, og einnig þekki ég nokkrar sem eru ljósar á hörund, heldur fleiri þó. Í ljósi náms míns í RP (received pronunciation), sem er eins konar grunnhreimur ensku, sá sem enn er notaður á BBC, þá þykir mér skemmtileg staðreynd að dökku vinir mínir tala flestir með afar fínum hreim, ansi nálægt RP, en margir hinna ljósu vina minna geta ekki myndað hljóðið "th" (þ í íslensku) og notast því við "f" í staðinn. Skemmtileg staðreynd sem á einmitt við bekkjarsystur mína og stuðningskonu Breska þjóðernisflokksins.
Á Wikipedia rakst ég á þessar tölur um ýmissa þjóða kvikindi á Íslandi:
984 Þjóðverjar
966 Danir
743 Filippseyingar
Helvítis Þjóðverjarjarnir eru að sölsa undir sig landsbyggðina og íslenska hrossarækt! Svo kaupir þetta allar lopapeysurnar svo ekkert er eftir handa okkur hinum, hnuss!
miðvikudagur, 30. apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
hnuss!!! Burt með alla þjóðverja!!! Nei kanksi ekki alveg þetta er alt saman besta fólk..... Ég þakka fyrir skjót viðbrögð Gudda mín!! ég met þess mikils...:D
Til hamingju með daginn Gudda mín! :o)
Guð eru Þjóðverjarnir svona margir! Svo eru það allt Tyrkir hjá þeim...
Próf, próf, próf baaaaahh.......
meira blogg meira blogg meira blogg........
Skrifa ummæli