sunnudagur, 13. apríl 2008

Óalkóhólismi

Í leiðindum mínum yfir því að vera komin aftur heim í Sjittarann frá hinni fögru Montpellier datt mér ekkert annað í hug að gera í hausinn minn en að drekka áfengi. Svo ég gerði það. Ég hellti hvítvínsdreytli í glas í gæreftirmiðdag og dreypti á því þar sem ég sat með sudoku í skautinu á náttfötunum uppi í rúmi. Svo kom Tinna heim svo ég skenkti henni í glas og í leiðindum okkar ákváðum við að stúta Opalpelanum hennar yfir klassamyndinni Becoming Jane... 1 og hálfri klst. síðar hafði okkur ekki tekist betur upp en svo að enn var 7/8 af Opalnum eftir, mér var farið að leiðast þófið og fór að sofa.
Ég held ég verði aldrei alkóhólisti...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hef reynt þetta líka en á svo erfitt með að koma miklu niður nema það þjóni einhverjum tilgangi. Þú ert ekki sú eina