mánudagur, 21. apríl 2008

Banging in the Nails

Enskt leikhús hefur verið markaðsvætt frá upphafi. Það útskýrir ýmislegt...
Á morgun á ég að fremja andlitsdans einhvern tímann á milli kl.15.30 og 17 að enskum tíma. Æfingar þessar lýsa sér þannig að fremjandinn setur lag að eigin vali á fóninn, tekur sér stöðu fyrir framan áhorfendur og hreyfir síðan á sér andlitsvöðva sem og tungu í takt við mússíkina. Já vinir mínir, þetta er "serious stuff" sem ég aðhefst hér í útlegðinni. En ekki væri athöfn þessi í frásögur færandi nema vegna alveg hreint frábærs lagavals míns. Ég hvet ykkur til að hlusta á þetta einkar óviðeigandi lag hér (ekki fyrir viðkvæma þó):

http://www.tigerlillies.com/2003/index.php?main=recordings&trackId=9

Sem betur fer er kristna stelpan í hinum hópnum...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá Gudda bara farin að blogga en gaman, þá getur maður farið að fygjast með henni.
Kv.
Beta

Nafnlaus sagði...

hehe vildi alveg hafa verið áhorfandi í andlitsdanstímanum;)hljómar mjööööööög spes!!

Nafnlaus sagði...

Halló esskan. Mín búin að sækja samviskusamlega um gaulnám. Pabbi þinn kom á safnið áðan og var svona ljómandi hress :) Ég er að fara í munnlegt próf hjá Ármanni Jakobs á þri (já hljómar illa!) langar að skjóta mig en á ekki byssu! Kv Lóba (sem hefur hugsað sér að kommenta á hverja færslu!)

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Á ekki byssu, hahaha!!!

Hofi :) sagði...

Andlitsdans við Banging in the Nails held ég að hljóti að vera ein tærasta snilld sem um getur :D