laugardagur, 19. apríl 2008

Enn líður og bíður

Galvösk hlunkaðist ég framúr rúminu í gærmorgun, boðin og búin að mæta á trúðanámskeiðið niðri í skóla. Sauð grautinn, fékk mér appelsínusafa, tróð linsunum í augun og skellti mér í jogginggallann, til í tuskið. Hjassaðist niður í skóla: Computer says no... Einhver snillingurinn hafði ákveðið að breyta námskeiðinu eða þá að fokking kennarinn mætti ekki eða fokking eitthvað annað álíka gáfulegt! Plongarinn varð svo leiður að ég mátti hafi mig alla við að hugga hann það sem eftir lifði dags :(

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Anda inn og anda út Gudda mín! Þetta er ekki heimsendir! Ég skal kenna þér nokkur trúða trick! Vertu bara einsog ég;)
hehe það þarf ekki námskeið til að brillera sem trúður!
Eigðu góðan dag!

P.s kemurur heim í sumar að vinna?

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Jamm, kem heim í byrjun júlí og fer að afgreiða hljóðbækur á Blindrabókasafninu :)

Nafnlaus sagði...

greinilega meira stuð í skólanum hjá þér en flestum öðrum, ég er sjaldnar hamingjusamari en þegar það fellur niður tími.

Ofurrauðkan sagði...

Ég man eftir svona "tímum". Long time...
Auður skólastúlka.

Nafnlaus sagði...

Plong fara á morgun :)

Hofi :) sagði...

Tími Plong mun koma!