miðvikudagur, 16. apríl 2008

Rógburður

Ég biðst velvirðingar á því að hafa logið því að fólki að Gerður G. Bjarklind væri stödd á Kanarí. Þetta var óvitaskapur af minni hálfu og bið ég hér með forláts. Hið rétta er að Gerður er stödd á Gíbraltar, en þar hefur hún dvalist undanfarna mánuði einsog dyggir aðdáendur hennar gera sér fullkomlega grein fyrir. Ég þakka móður minni fyrir að hafa leiðrétt þennan leiða misskilnings og hlakka til að fá Gerði aftur í Óskastundina.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hún Gerður veit sínu viti og tekur upp eftir einu ofsóknasta pari fyrr og síðar (Lennon og Ono) að flýja tryllta aðdáendur til Gibraltar.

Hofi :) sagði...

Ég held að það væri lag ef að hún Gerður er sest aftur við hljóðnemann (sem er vitneskja sem þú sem dyggur aðdáandi hennar hlýtur að búa yfir) að senda henni móður okkar kveðju í þáttinn og þakka henni Gerði vinkonu okkar jafnframt fyrir. You like?