Heilir og sælir kæru landsmenn, nær og fjær. Sumir ykkar eru nær, og er það vel. Aðrir kjósa að halda sig í hæfilegri fjarlægð og er það miður og eykur möguleikann á vinslitum til muna. En tölum ekki um það. Tölum heldur um hitabylgjuna sem hefur gengið yfir Kentskíri síðustu daga. Í gær gengum við Tinna naktar um heima hjá okkur vegna mollu (ég gæti verið að færa örlítið í stílinn hér) og í dag hefur sólin slegist í lið með hitanum og ákveðið að gefa okkur þann fallegasta sumardag sem um getur hér í sveitinni síðan í lok september, uhhh já.
Allana þá eredda geeikt.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga trallala og jibbíjeij!
mánudagur, 5. maí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
ætli það sé í tísku að ganga um nakin heima hjá sér? ef svo er, þá erum við greinilega tískudrotningar
usss usss suss..ég er aldrei nakin!
Hvað meinarðu með að "færa í stílinn"? Í mínum huga eru skírar minningar um nekt frá því í gær... eða var það í fyrradag..? ..eða bæði?
Já blessuð vinkona! Ég vil bara benda á að ég flutti til Svíþjóðar til að vera nær þér.
Óver and át
...hvín í Ólafi Loftssyni :)
Þetta er svindl. Ég er að fara í próf á morgun og hér heyrist ekkert nema flaut í frústereruðum vörubílsstjórum þar sem að maður er á síðustu metrunum í beygingarfræðinni. Svo er bara nekt og eitthvað dónalegt þarna í Soranum!
Og by the way þá dreymdi mig að værir að saxa eitthvert slímugt dýr lifandi og steikja það á pönnu. Ekki nóg með það heldur vildirðu vera ein í herlegheitunum og lokaðir hurðinni á mig og Marie Moller sem var með okkur út í Toffí. Mín var bara í fýlu. Hvað ætli þetta þýði
Bíddu bíddu, hvein ekki í Jóni Oddsyni?! Uss Lóba mín, þú skalt nú ekkert verað rýna í þennan draum, því gætu fylgt alvarlegar afleiðingar! Slímugt dýr...er þetta eitthvað kynferðislegt? Nei, barað spá...
jú, auðvitað var það í Jóni Oddssyni! Alveg merkilegt hvað ég er léleg í að muna svona hluti :/
Skrifa ummæli