laugardagur, 31. maí 2008

Venjuleg kona

Góðan daginn. Þessi bloggfærsla er skrifuð af konu sem lítur út einsog venjuleg kona.

Ég leit í spegilinn um daginn og uppgötvaði að ég leit út einsog venjuleg kona. Sérstaklega þegar ég var komin í venjulegukonu fötin mín sem ég keypti í verslunarmiðstöð sem venjulegar konur fara í, um daginn. Ég lít ekki út einsog fífl, þó ég geri mitt besta til að viðhalda útliti mínu þannig, ég lít út einsog venjuleg kona. Fólk sem kannski mætir mér á götu og þekkir mig ekki gæti hugsað sem svo þegar það sér mig: "Nei, hvað er að sjá, hér er venjuleg kona á gangi."
Sei sei.

5 ummæli:

Ofurrauðkan sagði...

"Ég er alveg eins og f'olk er flest og finnst það pr'yðilegt, það tekur enginn eftir m'er, það er svo notalegt..."

Ofurrauðkan sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Þú munt alltaf vera "fífl" í mínum augum, elsku Gudda mín ;o)

Nafnlaus sagði...

Þú ert náttúrulega Lolla!

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Takk fyrir að viðurkenna hið rétta sjálf mitt Tinna. Og jú, vissulega er ég líka Lolla, en ég hef alltaf séð hana fyrir mér sem fremur sorglega flíspeysuútgáfu af venjulegri miðaldrakonu... já.