mánudagur, 12. maí 2008

Óblíð örlög

Sjáiði hvað ég er orðin ógeðslega ósmekkleg, jiii segi ég nú bara á innsoginu. Svona ætla ég að vera alla vikuna.
Það er búið að setja mig í Heddu Gabler. Á morgun kemur í ljós hvurja kvensniptina ég verð látin leika. Ef heppnin verður með mér verð ég í titilhlutverkinu í lokasenunni og fæ að skjóta mig í hausinn, hahaha!
Vona að ég hafi ekki eyðilagt endann fyrir neinum...

5 ummæli:

Steinþórs sagði...

Hahahaha! Greyið þeir sem ekki hafa lesið leikritið og hafa beðið spenntir einmitt eftir að fá að sjá þig í hlutverkinu...! Þú ert búin að eyðileggja allt! :) En gaman... (Hey pínu leyndó...ömm...ég er að koma til ykkar í Rose híhíhí)

Nafnlaus sagði...

Veiveivei!! :oD Sidcup hlakkar geðveikt til að hitta þig, Erla ;o)

En hvað með LAMDA-prufurnar?

TinTin

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Vei vei vei! Erla kemur til mín :)
Hedda Gabler slapp undan, ég fékk gömlu frænkuna, híhíhí ;)

Atli Sig sagði...

ET fer heim! Bruce Willis er dauður! Rosebud er sleði!

Hofi :) sagði...

Sæl systir... eða ætti ég heldur að segja gamla frænka?? hehe Hvað segirðu, er sú gamla ekki bara hentug til leiks?
Ég verð að segja að þetta nýja útlit þykir mér vægast sagt skelfilegt! Sérhannaðiru það með tilliti til sérþarfa sjónskertra? Ég vonast eftir nýju og endurbættu looki hið fyrsta... annars var gamla lookið fínt alveg...