fimmtudagur, 15. maí 2008

Ástarmök

Í dag fluttum við Tinna söngleikjalagið okkar fyrir kennara og samnemendur. Allir hrósuðu okkur fyrir búningana okkar... sem voru í raun bara fötin okkar..., nema Tinna var með pissublett.
Klukkan er hálf tvö og því ekki nema um ein og hálf klukkustund í að íkornarnir byrji að eðla sig fyrir utan gluggann minn. Það er eina rökrétta skýringin sem ég get fundið á þessum skrækjum sem ég heyri um miðjar nætur, eða er ég bara orðin svona klikkuð, farin að láta mig dreyma um íkorna og unga drengi... ég vissi að ég hefði átt að kýla á nagdýraaðgerðina þarna í fyrra...

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég skrepp út í viku til glasgow án tölvu og þú bara ferð að skrifa á fullu!!!!! hvað á það að þýða!! líður einsog ég hafi misst af lífinu þínu...sem betur fer jafna ég mig held ég:S

Já hey!!! ég er búin að segja já við Rosebruford!!!!!!!!!!!!! ég er á leiðinni í skóla með þér kelling!!! múhaahhaa vertu tilbúin fyrir MIG!! haha

Nafnlaus sagði...

Ahhhh veiveivei! Velkomin, Ágústa!! :oD

(Gudda, ég lofa að segja eitthvað við þig í næsta kommenti, en ekki bara við einhvern annan sem efur kommentað hjá þér... en við hittumst nú á eftir og þá get ég tala við þig í eigin persóu)

Atli Sig sagði...

Færslan heitir ástarmök og því vonaðist ég eftir einhverjum svæsnum lýsingum á ástarlífi þínu þarna úti.

EN NEI.

Ég fæ bara einhverja ÍKORNA!

Þú ert svo sannarlega sori.

Hofi :) sagði...

Hvað með bloggorð 2? ;)

Nafnlaus sagði...

Gudda mín, þar sem ég er nú búinn að vera íbúi í þessu eldri borgarahverfi okkar soldið lengur en þú, þá skal ég fræða þig...Þessir skrækir sem þú heyrir á nóttunni eru refir, þeir ýlfra svona...(reyndar getur það líka verið ég, en þá alltaf sem svar-ýlfur..ég á það nefnilega til að henda hausnum út um gluggann og ýlfra á móti, finnst það svo ægilega skemmtilegt eftir að ég lærði refamál í haust) En geturðu ekki annars farið að sjá til þess að sambýliskona þín sé ekki með þessa hlandbletti alltaf hreint??
ÁGJ

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Ég þakka greinargóðar útskýringar á óhljóðum þeim sem glymja hér um hverfið. Mér líður einhvern veginn betur með það að hugsa um refi sem kynverur en íkorna... einhvern veginn...
Kæra systir, reglur eru til að brjóta þær, það vitum við listamennirnir (rigning í nef). Annars finnst mér þessi færsla frekar ögra 3. bloggorði en öðru.

Nafnlaus sagði...

Ég er sammála með refi sem kynverur. Þeir eru meira grrr. Ég var einmitt að útskýra fyrir minni Tinnu
(af því að ég á líka Tinnu eins og þú veist) muninn á kynverum og kynlausum. Taldi mig meðal annars vera mjög mikla kynveru og af því að þær eru svo miklu meira spennó eru þær líka skemmtilegri. Þú veist við höfum farið í gegnum þetta allt saman... En ég veit ekki alveg af hverju ég var að minnast á þetta! Færslan hét jú ástarmök!

Lára Garðarsdóttir sagði...

møk møk møk...møk eru sløk!