laugardagur, 10. maí 2008
...allt gullið sem ég á.
Í dag var síðasti dagur stundatöflu fyrsta ársins míns í þessum skólaræfli sem ég sæki á hverjum degi... næstum því hverjum degi. Ja hjarna, Gudda bara að verða stór, sem er hverju orði sannara því það er ekki laust við að hún stækki með hverjum deginum sem líður. En þetta gerist auðvitað með aldrinum, um að gera að vera dálítið búsældarleg svo maður fari nú að fá einhver bónorð. Heyrið þið það þarna úti! Ég kann að elda og baka og prjóna og hekla og vökva blóm og svo var ég að læra að fara í kollhnís (bæði afturábak og áfram) núna í vikunni svo hér er ekki komið að tómum kofanum. Komdu inn í kofann minn er kvölda og skyggja fer.... hehehe
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Mér finnst þú fyndin Guðbjörg, myndi biðja þín ef ég hefði lyst á stúlkum! Kveðja frá 53a Hatherley Crescent!
þú ert yndisleg!! Hvenær kemuru heim??
Þakka ykkur fyrir elskurnar, hvað þið eruð sæt :) Ég kem 1.júlí í fylgd með móður minni, enda ekki hægt að senda mann einan í flug.
En Gudda... hvað með trúlofunina okkar..? Manst' ekki þegar ég bað þín á Metro-bar um daginn og söng "Eternal flame" í karókí, og þú sagðir já? Þú varst reyndar svoítið full, en samt.. mannst' ekki...?
1.júlí. Det er for langt!
Skrifa ummæli