Hæ. Snillingur að nafni Tinna Þorvaldsdóttir sagði eitt sinn: Því gáfaðri sem þú ert, þeim mun erfiðara er lífið. Þótti mér vel mælt þar sem ég var stödd mitt í hundraðþúsundmilljónustu tilvistarkreppunni minni í morgun. Henni lauk stuttu síðar, eða fyrir klukkan ellefu og gat ég notið því þess sem eftir lifði dags einsog eðlileg manneskja, keypt mér bounty og samloku útí búð og gantast við bekkjarfélagana. Er lífið ekki yndislegt... Jæja, einsog ekki hefur farið framhjá ykkur lesendur góðir hef ég aðallega fengist við sjálfa mig á þessu bloggi. Ég ég ég ég ég. Ég hef ekki leitast við að koma annars mikilfenglegum skoðunum mínum á framfæri, ég hef hvorki rætt guð né heiminn, ég hef algjörlega hunsað göfugar vangaveltur og valið fremur að velta mér uppúr mínum eigin skít. Póstmódernískt wank. Er það ekki það sem okkur hinum athyglibrostnu fíflum nútímans finnst smart, Hugleikur Dagson og allt það. Hvar er listin? hvar er rómantíkin? Fegurðin hefur læðst út meðan við vorum upptekin við að háma í okkur eigin skít... eða þúst eitthvað. Mér er alveg sama.
Föstudagskveldið síðastliðið fann ég sjálfa mig aftur í leigubíl þar sem ég myndaðist við að skvetta ekki uppúr opinni vínflöskunni sem stóð skorðuð milli læranna á mér, umkringd unlingum sem skökuðu sér við útþynnt háskólarokk sem barst úr bílgræjunum á fullu blasti. What is my life like?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Your life is like a film sometimes, isn't it??!!!
Mér líkar það að þú talir bara um sjálfan þig...ég nenni ekki að lesa enn eina vangaveltuna um guð eða stjórnmál...það er klisja sem ég er virkilega farin að hafa hina mestu andúð á...
Ég fæ bros á vör þegar ég les um tilvistarkreppurnar þínar eða fyllerís sögur...mér líður betur þá með sjálfan mig þú sérð...ég er ekki þá lengur ein í heiminum svona ógeðslega mannleg og eðlileg...það eru fleiri;) Mig hefur nenfinlega alltaf langað að vera svo öðruvísi...standa uppúr og vera yfir aðra hafin á einvhern hátt en það er svo erfitt þegar maður gera eitthvað svo ótrúlega eðlilegt einsog að detta í það....eða þú veist...eitthvað svona... ég hlakka til að eyða með þér kvöldstundum Gudda mín á kaffi húsi í sidcup og ræða um Guð....
Hafðu það gott...humm já ætlaru að svara emailinu mínu?....
Kæra Ágústa, langar að leiðrétta misskilning hjá þér, við hér í Sidcup þekkjum ekki "conseptið" kaffihús. Það er bara ekki í boði. Kæra Guðbjörg, ég kann vel við þig athyglibrostna, sérstaklega vel þegar þú notar orðið rétt. Því í upphafi var jú orðið. (sérðu Guðbjörg hversu skemmtilega ég blanda saman guðs orði og almennu hversdagsblaðri? Það er nákvæmlega þetta sem gerir mig að leikstjóra og þig að leikara)Vonast til að sjá þig á húsaflakki í kvöld, farðu nú guði á vald í grátt brókarhald.
ÁGJ
Mér þykir þú vera orðinn heilagur Árni Grétar! Ég vil samt meina að ég hafi samið þetta orð og áskil mér rétt til að nota það einsog mér sýnist, humpf! ;)
,,keypt mér bounty og samloku útí búð og gantast við bekkjarfélagana. Er lífið ekki yndislegt..." Þessar setningar voru gull. Þær voru settlegri en í sama stíl og þegar ég ætlaði að skjóta mig í hausinn en átti ekki byssu. Gvöð hvað manni finnst maður einmitt vera tómur þegar mar er í sjúklegri kreppu en getur ekki annað en hlegið með fíflunum því maður hefur ekki efni á að hlæja að þeim! Þá kemur upp í hugann frasi sem þú hefur notað svo oft elskan, með dálítið nefmæltri röddu: ,,Jesús minn góður..." Athyglisbrostinn er öllu harmþrungnara orð en athyglisbrestur, fær tólf stig hjá mér.... Brostinn ó brostinn!
By the way elskan. Ég er búin að lita mig ansi hreint blonde og stytta hárið. Með svokallaðan bob þessa dagana, a la Paris Hilton. Ji þetta á nú eftir að ganga vel í strákana. Like they say, blondes have more fun hahahahaha.
Ekki það að ég hef sett á mig skírlífsbeltið. Svona þangað til um helgina, ha ha ha....
Skrifaðu nú meir, ég er komin aftur í borgina á bókasafnið og mig þyrstir í sorann
Lóban
Skrifa ummæli