laugardagur, 31. maí 2008

...hvað er betr'en að dansa?

Góðir hálsar!
Heyrst hefur að ég sé á leiðinni til Íslands. Orðið á götunni er að ég muni lenda um miðnætti 1.júlí og verða á landinu bjarta fram í september. Þar sem ég ku ætla að ala konuna á öldurhúsum Reykjavíkur einhvern hluta sumars er vert að benda á að opnað hefur verið fyrir skráningu á danskortið mitt. Að þessu tilefni vil ég benda þeim einstæðum körlum sem þrífa sig á þetta frábæra tækifæri og hvet ykkur eindregið til að hafa samband. Fyrirspurnir (mál og annað) sendist á netfangið mitt: kussimalli@hotmail.com

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég er gullfallegur karlmaður sem veit ekki af því, ég er velgefinn, með góða menntun og frábært starf. Þéna umfram meðal en er ekki í starfi mínu vegna peningana. Ég er gjafmildur og fæ sérstaka unun á að gefa gjafir. Ég er fyndinn en alvarlegur þegar það passar. Viltu hitta mig?

Nafnlaus sagði...

Hvað ef maður er hvorki karlmaður né sérlega þrifin? Viltu samt dansa?

Unknown sagði...

Hlakka til að sjá þig.... en þangað til máttu halda áfram að skemmta okkur skrílnum á Fróninni með skemmtilegum færslum þínum:)

Nafnlaus sagði...

hlakka heil ósköp til að sjá þig elsku besta!!

Smali sagði...

Ég vil ólmur að þú takir frá a.m.k. einn dans á danskortinu, þú mátt velja daginn. Ég er reyndar upptekinn 11.-25.júlí, en annars kem ég bara þegar hóað er.

Nafnlaus sagði...

Ég pant!

Nafnlaus sagði...

Ég þakka góðviljaðar skráningar ykkar á danskortið mitt kæru vinir. Þær eru hér með meðteknar þrátt fyrir að ekkert ykkar standist öll 3 skilyrðin. Og Lára, ég veit að þetta varst þú að gabba mig, það er mjög alvarlegur glæpur að afvegaleiða örvæntingarfulla konu í yfirvigt! Við eigum eftir að sjá afleiðingarnar af því...

Nafnlaus sagði...

Jesús pétur! Ég veðja á að þú fáir drengi á aldrinum 18 til 22 ára mikið til að dansa við þig, þeir hafa ægilegan áhuga á sér eldri konum hér í Reykjavík. Annars get ég alltaf húkkað þér öpp, ég er snillingur í að laða undarlegustu karlmenn að borðinu mínu!

Nafnlaus sagði...

Ég er að fara á Boogie Woogie og Lindy Hop námskeið! Má ég dansa við þig þegar ég er búin á því???:)

Lára Garðarsdóttir sagði...

...djössss