Reikult er rótlaust þangið,
rekst það um víðan sjá.
Straumar og votir vindar
velkja því til og frá.
Fuglar flugu yfir hafið
með fögnuði og vængjagný,
- hurfu út í himinblámann
hratt eins og vindlétt ský.
Þangið, sem horfði á hópinn,
var hnipið allan þann dag.
Bylgjan, sem bar það uppi,
var blóðug um sólarlag.
Jóhann Sigurjónsson
Kauphallirnar á Canary Warf eru nýja Esjan mín, þær eru það eina sem stingst upp úr flatneskjunni fyrir utan gluggann minn. Ji hvað lífið er táknrænt!
6 ummæli:
Jóhann Sig var heitur. Og ég er ekki að tala um leikarann. Þó hann sé líka heitur.
Æ vertu ekkert að vera með heimþrá!! ég er með Útþrá!! en það er gaman að lesa þetta blogg þittt!! Þú ert merkileg stelpa! stundum skrítin en það er alt í góðu!
Þakka þér fyrir Ágústa mín, þetta er fallega sagt :)
Það ku ekki vera góð íslenska að tala um heita menn nema þá helst þeir séu með einhverja hitavellu. Jóhann var hins vegar kúl, enda þunglyndur með eindæmum...
ég hef aldrei velt þessu fyrir mér áður, það er bæði jákvætt að vera heitur og svalur, jafnvel kaldur ... þó er aðeins heitara að vera svalur en kaldur.
Fyrir utan gluggann minn er rauður múrsteinsveggur, en ég sé skóginn í fjarska. Það gleður hjartað mitt.
Sammála með hann Jóa, held hann hafi verið svoldið mín týpa og svona líka blóðnýrómatískur. Elsku Gudda mín þú ert bara svona mikill Icelander
Skrifa ummæli