sunnudagur, 27. apríl 2008

Bráðum kemur betri tíð tralala...

Þau gleðitíðindi bárust ensku kvenþjóðinni til eyrna að vorið og gott ef ekki sumarið bara er komið til landsins. Þetta merkir hjaðnandi blöðrubólgu og minni fjárútlát í sýklalyf og trönuberjasafa. Ætli hann hækki ekki í verði?

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Uuuu eru allar konur í bretlandi með blöðrubólgu á veturnar??? humm þá er ég nú ekkert viss um að ég vilji flytja þangað sko!! verð að hugsa þetta aðeins.......

Nafnlaus sagði...

Eee jú okei ég læt mig hafa það.....

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Engar áhyggjur Ágústa mín. Þetta á aðeins við um enskar konur því þær eiga það til að klæða sig helst til illa þegar mikið liggur við í skemmtanalífinu. Við sem lærðum að klæða okkur eftir veðri drekkum bara trönuberjasafa ef okkur finnst hann góður

Nafnlaus sagði...

Svona er mál með vexti Gudda mín, að ég er í vinnu þar sem það koma tímar sem ekkert er að gera!!!!! þá hef ég sem betur fer tölvu sem mér finst afar gott að glugga í.....eeen nei viti menn Gudda er ekki neitt búin að skrifa í laaaaaangan tíma!!! skrif þín eru það sem kemur brosi á mitt ándlit á daginn.... gerðu það skrifaðu meir...plííííííííssss!!! fyrir geðheilsuna mína:)

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Ég þakka fögur orð í garð skrifa minna mín kæra Ágústa. Ég skal reyna að kreista eitthvað út úr lyklaborðinu hið snarasta...ég meinti þetta ekki á dónalegan hátt, og þó, kreista, hehe...