1.Þú skalt ekki önnur blogg hafa
2.Þú skalt ekki skrifa neitt sem móðir yðar má ekki lesa
3.Þú skalt ekki skrifa um ástarmál þín
4.Þú skalt ekki skrifa um kúk og piss (kúkur piss hehe...)
5.Þú skalt ekki níða skóinn af öðrum
6.Þú skalt ekki heiðra skoðanir annarra
7.Þú skalt ekki rita það er yður félli eigi í geð að ritað væri um yður
8.Þú skalt ekki girnast blogg náunga þíns
9.Þú skalt ekki girnast kaffikvörn náunga þíns, Neil Diamond safnið, ferskjulitað sófasettið, tíglasokkana, glansandi pinnahælana, sólbrúnkuna, allar þessar bissnessferðir hans, sílíkonbrosið og þessar endalausu viðreynslur... né neitt annað sem náungi þinn á.
10.Þú skalt ekki samviskubit yfir því hafa að blogga alltof sjaldan.
laugardagur, 12. apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
Blessuð Gudda mín, og velkomin í bloggheiminn ;o)
Sjáumst á eftir þegar ég labba fram hjá þér á leiðinni á klósettið...
Takk elskan, þetter agalega skemmtilegt. Góðar hægðir!
halló vinkona!
mikid er langt sídan ad ég hef heyrt frá thér mín kæra, væri nú gaman ad gera thad:) hvenær kemuru svo heim til okkar??
vá ég var hissa í gær þegar ég rakst á þig á facebook, það hafði ekki einu sinni hvarflað að mér að þú ættir slíkt og hafði ég því ekki flett þér upp sérstaklega í leit minni að vinum þar. nú er ég enn meira hissa, með blogg og læti. ég hef eitthvað verið að mis ...
Á ég að trúa því að þú ætlir ekki að níða framlag júróvisjón, koma með alltof persónuleg statement eða nöldra yfir gatnakerfinu, innflytjendum, frjálshyggju, brúnkukremum eða hverju sem hugurinn girnist?
Ps sæl elskan og takk fyrir að vera til.
Júróvisíón er ömurlegt. Gatnakerfi eru ömurleg. Innflytjendur eru ömurlegir. Frjálshyggja er ömurleg svo og brúnkukrem... já og svo er ég að fara að gifta mig...djók!
en frjálshyggja er ömurleg
Jæja, þá lufsast maður loksins til að lesa bloggið, nú verður gaman :)
Skrifa ummæli