sunnudagur, 13. apríl 2008

Blóðbleyjur...

Það er hægt að kaupa konubleyjur í Super Drug í Sidcup, hahahha! Og þetta eru engar ömmubleyjur sko...
Mín vaknaði einsog stunginn grís í blóðpolli í gær (nema hvað grísinn hefði sennilega ekki vaknað...) og trítlaði beinustu leið útí næsta apótek. Þar sem ég stend þar og er að virða fyrir mér varninginn verður mér starsýnt á risastóran Uber Duber Ultradömubindapakka með mynd af afar lögulegum kvenmannsbotni í ansi gerðarlegum hvítum nærbuxum. Haldiði ekki að í pakkanum séu þá heilar nærbuxur, með innbyggðu dömubindi sem kona smeygir sér í og fleygir svo bara þegar hreinlætið krefur. Ég athugaði nú ekki úr hvurs konar efni þessar buxur eru en mun gera það að verkefni næstu viku og læt ykkur svo vita. Ég treysti mér ekki alveg í buxurnar og keypti mér bara þetta venjulega, bleyjufílingurinn gæti orðið sjálfsvirðingunni yfirsterkari.

Ætli þær séu til í extra-large?...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mér finnst þessi færsla nú jaðra við að brjóta fjórða bloggorðið ...

Hofi :) sagði...

Umhverfisvitundinni varð um og ó að lesa þessa færslu :/