Listmenntaskóli og hana nú. Þetta þykja mér fréttir. Það er ýmislegt að gerast á landinu bláa þó maður sé fjarverandi.
Ég er aftur byrjuð að sprikla, Bramleyinn er staðráðinn í að koma okkur nemendalufsunum í form eftir überpáskafríið og hefur nú þegar tekist að knýja fram ósköpin öll af svita, blóðþrýstingi og tárum. Ég var svo sárfætt eftir tímann í gær að ég kjagaði heim einsog mörgæs, hangandi í Tinnunni minni.
Smellti mér inní London með Bru-krúinu á Evróvisjónglaðning mikinn. Sá glitta í Friðrik og Regínu. Ji, hvað þau eru alltaf smart.
Komst að því í vikunni að ég er hætt að geta tjáð mig í orðum (nema þegar ég þarf að troða skoðunum mínum yfir á mömmu) og er þess í stað farin að eiga samskipti við heiminn með hreyfingum og (ó)hljóðum. Skelfilegar fréttir fyrir óskrifuðu ritgerðina sem ég átti að skila í síðustu viku, úps!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Geturu útskýrt nánar með listmenntaskólann! ég by nú enn á landinu bláa en veit ekkert hvað þú ert að tala um KONA GÓÐ OG MIKIL( samt ekki mikil á vondan hátt, þá meina ég feitan hátt heldur ertu ábyggilega komin með vöðva núna eftir alla leikfimina) nei nú er ég alveg farin að bulla!!;) hafðu það gott:)
Jú, fyrirhuguð er stofnun menntaskóla í Reykjavík sem einbeitir sér að listgreinum, sjá viðtal við Sölva Sveinsson í Stjörnukíkinum þann 25/4 kl.14.03 á www.ruv.is
Ritgerðin mín stendur þér ennþá til boða fyrir aðeins 10 pund. Heldurðu nokkuð að John myndi taka eftir því að við værum með sömu ritgerðina?
Ok ég myndi kannski kannski gefa þér afslátt, svona fyrir vináttu sakir...
uuuuuuuu, bubu, buuuuuuuudubuuuuudu, mu! Ekkert að tjáskiptum með óhljóðum, Gudda mín, eins og við systur höfum margsinnis sannað ;)
Skrifa ummæli