Þegar ég vaknaði áðan tók ég eftir því að náttbuxurnar mínar voru orðnar alltof síðar á mig, nefið hafði stækkað og brjóstin farin að lafa niður á miðjan maga (annað auðvitað ívið síðara). Þetta er aldurinn: maður er farinn að falla saman...
Á þessari síðu mun ég leitast við að segja frá ferðum mínum um heiminn í máli og myndum. Ég mun lýsa helstu uppákomum sem mig kunna að henda sem og greina frá eigin upplifun af menningu þjóðanna. Góða skemmtun.
5 ummæli:
Vá. Ég hlakka til að verða 27 ára!
Gudda, mig langar í mörgæs... getum við fengið okkur mörgæs?
vá magnað og þetta gerðist allt yfir eina nótt??? ég sem er enn að tjékka hvort ég hafi ekki vaxið yfir afmælisnóttina!
ég vaknaði í öfugum nærbuxununum, þá meina ég ekki á röngunni.
Víðir
Voðalegar útlitsbreytingar eru þetta altaf á þér manneskja. Fyrir mér ertu alltaf sami sauðurinn!
Lóba
Skrifa ummæli