fimmtudagur, 11. desember 2008
Þolinmæðufærsla
Hæ. Ég bý á Íslandi. Ég er í lopapeysu. Hallgrímskirkjuturn er með tvö rauð horn. Stundum er snjór. Það er myrkur. Piparkökur eru góðar. Mig langar í malt. Vinir mínir eru skemmtilegir. Græni hlunkurinn er kominn inn í stofu. Mamma er mjög ánægð með það. Mér finnst að ég ætti að fá í skóinn. Ég styð Jóhannes úr Kötlum. Stekkjastaur kemur ekki fyrr en aðfaranótt 13.desember. Ef þið vaknið með eitthvað drasl í skónum 12.des þá er það plat (örugglega mamma ykkar eða eitthvað). Woolworths er að fara á hausinn. Æ æ. Landslag er aldrei asnalegt er fín bók. Ef einhvern langar að koma í heimsókn og lita þá á ég mjög flotta litabók með Pétri og Brandi. Ef einhver á hund þá má hann koma með hann í heimsókn. Ef einhver er sætur og vel gefinn má hann líka koma í heimsókn. Ég tek strætó. Leið eitt. Það kostar ISK 227,27272727272727272727272727273. Það er ágætt. Í gær keypti ég mér pulsu. Í gær sprakk líka bókasafn en ekki í loft upp heldur úr þenzlu. Í Brynju er hægt að kaupa millistykki fyrir enska innstungukló. Ekki í Mál og Menningu. Ónefndir rithöfundar eru ekki mættir í lestur. Ég er enn að bíða. Ég fékk rauðkál og grænar baunir um daginn. Bæ.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
en ma hundurinn lita?
Já :)
PYLSU !!!!!!!!!!!!!!!!
Hæ. Mér er illt í hálsinum. Í morgun vaknaði ég hálfsex og talaði um seinni heimstyrjöldina í einn og hálfan tíma við pabba minn. Ég gleymdi umbúðarpappírnum í búðinni en enginn stal honum. Hann er brúnn. Ég er leið því vinkona mín sagði að ég væri leiðinleg. Mandarínur eru góðar. Í dag talaði ég við unglinga í skóla í glænýju hverfi. Á Íslandi bjóða allir mér í kaffi en svo gefa þeir mér oftast te að drekka. Kötturinn minn er svartur. Bæ.
Skrifa ummæli