fimmtudagur, 11. desember 2008
Framfarir hrjáðrar þjóðar
Ísland er ótrúlegt land. Tæknin hér er mögnuð. Kannski af því það eru svo margir með háskólagráðu. Hér er bæði heitt vatn sem streymir af fullum krafti úr þar til gerðum sturtuhaus en hann er festur upp á vegg í eins konar klefa svo maður getur áhyggjulaus staðið undir bununni og þrifið sig. Þetta þarf ekki að taka meira en 3 mínútur kannski. Svo er annað að ég þarf ekki nema stjaka við einum takka á viðtækinu mínu og þá ómar Ríkisútvarpið um baðstofuna. Þetta þykir mér magnað!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
..betra en allt, get eg ytt a nokkra takka a lyklabordi og tar med veistu ad eg hef hugsad til tin.
ekki mun háskólagráða mín nýtast í slík tækniundur. En kannski gæti ég æft mig að lesa upp úr norsku kennslubókunum Lyriske strukturer og Tekstens monstre með óaðfinnanlegum sönglanda og náð mér í oslóskan mann. Ef ég tæki of hart á orðunum myndi ég sennilega sitja uppi með einfaldan nýnorskan ofsatrúarmann...
Við skegg spámannsins. Að skera smjör með stálþræði! Já máttug er tæknin.
Skrifa ummæli