þriðjudagur, 4. nóvember 2008

XXX

Kvenleikinn er ekki gefins, hann fylgir ekki kyninu. Það þarf að læra hann, þjálfa sig í honum, sennilega alast upp í honum líka en það er ekki nóg. Það þarf að kaupa sér hann, klæða sig í hann, setja hann á sig, jafnvel sprauta honum í sig, skera sig upp til þess að koma honum fyrir. En þetta vitum við jú öll, er það ekki?

Ef þú klæðist víðum gallabuxum og ert ekki grönn þá ertu samkynhneigð.
Ef þú málar þig ekki á hverjum degi þá ertu samkynhneigð.
Ef þú flissar ekki og skríkir og fleygir þér í fang stráklinga þá ertu samkynhneigð.
Ef þú berð kynjaréttindi fyrir brjósti á óáberandi hátt þá ertu samkynhneigð.
Ef þú býrð yfir einhvers konar gáfum þá ertu ógnun við Mannkynið og hlýtur að vera samkynhneigð.

Konur eru ekki fyndnar.
Gaurar eru fyndnir.
Grínþættir sem gaurar semja og eru í eru fyndnir og ef þér finnst það ekki ertu leiðinleg.

Takk fyrir kosningaréttinn, takk fyrir menntaveginn, takk fyrir hið opinbera líf.

5 ummæli:

Lára Garðarsdóttir sagði...

Haaaaaleluja!

Nafnlaus sagði...

Heyr heyr!

Þórunn sagði...

Meiri reiði, fleiri hnefar í borðið, meira ,,djöfull er þetta ósanngjarnt helvítis helvíti!" Takk Gudda. Ég var sjálf að skrifa ofurlítinn reiðipistil Ég er hætt að hlæja að gaurum. Þetta er það heimskt...

Nafnlaus sagði...

Þetta þykir mér vera ein besta bloggfærsla sem ég hef lesið!
Og Gudda, þú værir uppáhalds uppistandarinn minn í heiminum!!

Nafnlaus sagði...

Ég vissi ekki að ég væri samkynhneigð!!

kv.Gróa