miðvikudagur, 5. nóvember 2008
Kamúflasj
Þetta var nú meiri ósvífni hérna fyrr í dag kæru vinir. Ég bið ykkur að afsaka. Ég ætti nú heldur að reyna að vera pínulítið skemmtileg. Jæja, ég get sagt ykkur það að í fyrradag sá ég pöddu sem leit út einsog hluti af trjágrein. Ég get svo svarið það! Ég hélt ég væri bara komin inn í heimildamynd eftir David Attenborough en hvert sem ég leit sá ég karlinn hvergi, aðeins gáttaða sambýlinga mína sem stóðu með mér í andyri fjölbýlishússins og göptu. Nei, þetta var nú ekki alveg svona spennandi en, engu að síður, það skemmtilegasta sem komið hefur fyrir mig eftir að ég steig fæti á keltneska, eða sexneska eða hvaða nú annars er, jörð.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Mér fannst hinn pistillinn bara ekkert leiðinlegur, þó svo að pöddusagan hafi verið ákaflega skemmtileg líka.
Sammála Erlu. Það er gott að vera leiðinlegur (samt ekki heimskleiðinlegur, það ertu ekki ;)) Pöddur eru skemmtó
Hún var ansi merkileg, pödduskjátan..!
Skrifa ummæli