sunnudagur, 23. nóvember 2008

Vöruskortur á Bretlandseyjum

Hér sé Guð!
Ég fór út í búð í þeirri veiku von um að þar gæti ég fest kaup á kaffifilterum. Í kaffihillunni sem er vandlega kaffærð í þúsundum tegunda telaufa og instanskaffikorna var þá hins vegar hvergi að finna. Í staðinn keypti ég efnisgóðan eldhúspappír þar sem búið var að hella upp á öll blöðin úr síðustu rúllu. Mér segist svo hugur að kaffifilterasendingin sem var pöntuð þarna 2003 hafi klárast í nóvember í fyrra þegar ég keypti síðasta pakkann.

6 ummæli:

Steinþórs sagði...

Ég elska Sidcup. Ég mana þig til að finna Wasabi hér í bæ!

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Úff púff. Hef reynt það og meira að segja líka í Bromely en allt kom fyrir ekki :'(

Nafnlaus sagði...

Kaffipokar heitir þetta fyrirbæri á suðurlandinu, ólíkt íslenskara og fallegra en þetta filteratal á þér! Mig langar að benda þér á þá þjónustu sem flestar búðir hérna bjóða uppá, sem er að láta panta inn ákveðnar vörur. Maður fer til þess starfsmanns sem virkar minnst þroskatæpur og biður hann um að láta panta vöruna, hún er þá yfirleitt komin innan fárra daga! Það er ástæðan fyrir því að nú fæst m.a. hlynsíróp í fyrsta skipti í Sidcup. Gleðilegan dag!

Steinþórs sagði...

Sniðugt...ég ætla að prufa þetta með Wasabi-ið og þarann....og mysing!!!! :D

Nafnlaus sagði...

Vá! Þetta vissi ég ekki, og þakka þér kærlega fyrir upplýsingarnar Árni Grétar. Ætli þeir hafi nokkuð á móti því að panta inn nokkur kíló af harðfiski? Mér finnst vera agalegur skortur á harðfiski hér í Sidcup.

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Já ég veit Árni, kaffipokar. Ég var að reyna að forðast þann misskilning að lesendur rugluðu pokunum við kaffipakka...en þetta eru sennilega ensk áhrif. Annars þykir mér þetta ótrúleg þjónusta í þessu þjónustuhefta landi. Ég geng í málið og panta harðfisk í leiðinni.