Sælar verið þið allar góðar vættir.
Nú er ég um það bil að leggja í lítinn verslunarleiðangur í nágrannasveitarfélagið. Þar hyggst ég festa kaup á hvítri skyrtu og pilsi eða buxum í formlegum stíl. Það er ekki laust við að setjist að mér hrollur; iðulega þegar ég er stödd í mátunarklefum Mammons, og skiptir þá engu hvort ég hafi lagt upp með jákvætt hugarfar eða ekki, kemst ég aldrei hjá því að líða einsog skrokkurinn á mér sé bæklaður. Yfirleitt kaupi ég því ekki neitt (nema kannski sokka og nærbuxur) og skríð út með afsökunarblik í augunum yfir því hvað ég sé ógeðsleg. En nú, góðu gestir, liggur mikið við því ég þarf að finna klæðnað fyrir sýningarnar í næstu viku og þar sem í árganginum finnst engin stúlka af minni stærðargráðu ætla ég að skunda inn í Primark, fleygja af mér kápunni, ráðast á fatarekkana einsog gráðugt dýr, máta allar þær tuskur sem ég næ í, rífa og tæta þær helvítis flíkur sem komast ekki yfir mjaðmirnar á mér og öskra með efnistætlurnar í tönnunum: TIL HELVÍTIS MEÐ HIÐ STAÐLAÐA SNIÐ!!! Hlaupa svo alsber fram í búð með mínípils á hausnum og fokking rústa pleisinu... uh, já einmitt, það ætla ég að gera. Jæja, það er best að ég raki mig undir höndunum fyrst.
Ef ég skrifa ekkert næstu viku þá hef ég sennilega verið handtekin. Bæ bæ.
laugardagur, 29. nóvember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Mig langar ad koma med!! Ma eg sja!!
Ágætis plan. Þú fórst semsagt að versla á no shopping day? gott, gott...
Ansans vandræði! Af hverju sagðirðu mér ekki frá þessu fyrr Auður! (tókstu eftir því hvernig ég snéri skuldinni yfir á þig?) Ég átti að vísu engra úrkosta völ þar sem ég þurfti að finna mér búninga fyrir sýningarnar í komandi viku, en dýrustu flíkina fékk ég notaða í góðgerðarbúð...
Þess vegna hefurðu ekki komið heim síðan á laugardaginn..! Af hverju hefurðu ekki hringt í mig? Við Víðir getum kannski selt okkur fyrir tryggingunni..
Hvað er hún há??
Hahahahaha... nú sit ég hér og hlæ ein upphátt hahaha ... ahh þúrt snillingur :)
kv.Britta
Nú finnst mér að þú eigir að fara að setja inn Íslands-blogg, og árast til að kommenta á mín, esskan.
Kveðja,
Binna
Hvaða hvaða! Læti eru þetta í þér stúlka.
Skrifa ummæli