miðvikudagur, 5. nóvember 2008
Mannréttindi ofalinnar kynslóðar
Mér finnst áhugavert að núna þegar samfélag stendur hugsanlega (vonandi) á tímamótum varðandi gerð sína og þegnar þess yfir og undir miðjum aldri fyllast reiði vegna spillingar og annars óréttlætis í þeirra garð þá hafa jafnaldrar mínir mestar áhyggjur af því að geta ekki sér að kostnaðarlausu horft á bandaríska skemmtiþætti í sjónvarpinu.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Spes... Sælir eru einfaldir, eða kannski ekki, þe ef family guy er ekki í boði
já ég hef áhyggjur af því og skammast mín ekkert fyrir það...og ég er samt gáfuð:)
sumt snyst ekki alfarid um lelegar seriur heldur leleg samkeppnislog...i tad for min signatura
Við skulum nú vona að þeir þroskist upp úr þessu aumingjarnir... Annars getur maður lítið annað gert en að ýta undir einhver konar kúltúr sem mótvægi við léttmetinu.
Slæmt hefur það verið á dögum Nóa.
Kv.Gróa
Það eru sjálfsögð mannréttindi allra að fá að gleyma sér yfir módel-þáttum og teiknimyndum. Mikið hefur breyst síðan mín kynslóð var upp á sitt besta og fagnaði því að fá gúmmístígvél svo enginn væri blautur á tánum í heyskapnum.
Sko, mér finnst þetta pínu dúbó þar sem einkafyrirtækið Skjárinn stendur fyrir undirskriftasöfnuninni en ekki hópur fólks sem vill sjá sanngjarnara samkeppnisumhverfi. Þetta sést best á því að undirskriftalistann er að finna á heimasíðu Skjásins. Hann er líka rækilega markaðssettur: "Viltu hafa áfram aðgang að ókeypis sjónvarpsstöð á Íslandi?" (virkar betur á markhópinn heldur en t.d. vilt þú sanngjarnara samkeppnisumhverfi?) Ég hef ekkert á móti Skjá einum né því að fólk berji hann augum en þetta efnisval (forgangsröðun) jafnaldra minna þótti mér athygliverð í rannsóknum mínum á bloggfærslum þjóðfélagsþegnanna.
jah það getur vel verið dúbíus og allt það, en allt snýst þetta um að halda sér á floti og ekki var ég vör um stöðu skjá eins svona prívat og persónulega..so I can´t blame them for trying...en ég man að ég eitt sinn var að vonleysast yfir þessum bransa sem þú og ég eigum sameiginlegan, (og já fólkið á skjáeinum líka) þá var svarið sem situr enn fast í mér...don't under estimate the value of entertainment! og fyndið nokk að þá er það bransinn sem einna best helst á floti í þessum krepputímum, því fólk þarf að geta flúið raunveruleikann og gleymt sér yfir öðru eins. Þess vegna stink-a þessi lög líka...og gaman að segja frá því að bara í skandinavíu einni er rúv eina ríkisrekna stöðin sem fær að birta auglýsingar..lg
Ég hef tvö orð handa ykkur: Dán - Lód.
Ekki að ég geri svoleiðis sjálf. EVER.
Skrifa ummæli