föstudagur, 7. nóvember 2008

Af gömlum siðum og nýjum

Halló. Í dag sat ég yfir enn einum fyrirlestrinum á hversu viðbjóðsleg kynfæri kvenna eru. Ég var líka spottuð óþarflega mikið fyrir að hafa gert mér dælt við ungan mann á skemmtan um helgina. Ég íhugaði meira að segja að biðjast afsökunar á framferði mínu... Mér finnst stundum einsog hlutirnir séu ekki alveg einsog þeir ættu að vera. Mamma, þú hebbðir átt að taka þér tvo frídaga þarna '75.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Enn einum fyrirlestrinum, hvað ertu að læra í þessum skóla, ég hélt það væri leiklist? Eða er þetta ekki skólinn heldur vinir þínir sem tala svona? Það er mjög margt ekki alveg eins og það ætti að vera að mínu mati, ég er alveg sammála þér um það Guðbjörg mín kæra.

Þórunn sagði...

Hvað í andskotanum er að gerast þarna í Sjittaranum? Er þetta að verða verra en í Toffílandi? Heyrist það...

Ofurrauðkan sagði...

Fyndið, ég var að heyra lofsöng um vagínuna. Reyndar frá homma.

Nafnlaus sagði...

Var hommi að tala vel um píkur?? Vá, það hef ég bara aldrei heyrt áður!

Steinþórs sagði...

Hvur andskotinn!! Ég er að verða bara svoldið pirruð hérna....

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, heimsborgari sagði...

Óglöggum lesendum bendi ég á óhjákvæmilega tengingu Kvennafrídagssins og ársins 1975.

Hofi :) sagði...

ég veit ekki betur en að mútti okkar hafi tekið þátt í kvennafrídeginum '75... en allt kom fyrir ekki.