þriðjudagur, 7. október 2008
Neyðarkall!!!
Félagar, það er á ögurstundu sem þessari sem ég leita til ykkar. Okkar sambönd hafa, einsog önnur, verið upp og ofan. Samskiptin hafa verið mismikil og skoðanir skiptar. En eitt höfum við þó átt, og það er vinátta. Við höfum hjálpast að, rétt hvert annað við og stappað í hvert annað stálinu. Því er það nú að ég leita til ykkar, kæru vinir, eftir stuðningi. Þegar hart er í ári leita vinir jú hver til annars. Þegar kuldinn sækir að þjappar fólk sér saman og veitir hvert öðru yl. Þegar á móti blæs tökum við höndum saman og berjumst gegn storminum. Í ljósi fjárhagsörðugleika þjóðar vorrar kreppir skóinn að hjá okkur sem erlendis dveljum. Skólavist okkar er í hættu vegna gengishruns undanfarinna daga svo og framtíð okkar öll. Því er svo komið að við sambýliskona mín óttumst um búsetu okkar. Það er að hennar áeggjan sem ég teygi hönd mína út til ykkar nú og bið um aðstoð. Til að gera okkur kleyft að dveljast á heimili okkar hér í Lundúnum vantar mig mann sem vill gangast við mér, deila með mér rúmi og okkur tveimur íbúð og greiða þar með þriðjung leigukostnaðarins. Félagar, ég geri mér grein fyrir því að þessa bón er ekki auðsótt að uppfylla. Ég geri mér grein fyrir því að mikla fórnfýsi þarf til að slíta sig úr faðmi fjölskyldunnar heima á Íslandi og flytja landa á milli. En ég geri mér líka grein fyrir því að ávinningurinn mun ekki standa fórninni að baki. Félagar, mig vantar neyðarkarl!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
Neyðin kennir naktri konu að spinna Guðbjörg, og reiðin kennir naktri konu að nota getnaðarvörn! Taktu nú upp rokkinn og farðu að selja þessi prjónales þín, eða gerðu eins og ég og seldu þig!
Heyrheyr!!
Þessi í runnanum virtist vera skotinn í þér...fáðu hann bara til að flytja inn;)
Við á Blindradótinu gætum kannski séð af Mr. Laverne í þágu góðs málefnis
Var Víðir Örn kominn með húsnæði?
Nei annars, ég er sammála síðasta ræðumanni. Mr. Laverne er maðurinn!!!
nú ertu aldeilis komin í feitt! frétti að það væru tvö heljarmenni skriðin uppí til þín, þú ert ekki að spara það þegar þú tekur þig til Guðbjörg!
Jú jú, þeir komu hérna tveir en eru horfnir á braut á ný. Mér skilst að þeir hafi ekki fengið dvalarleyfi vegna ótrausts þjóðernis síns. En ég á von á nýjum manni um helgina. Þetta er allt að koma.
Skrifa ummæli