sunnudagur, 5. október 2008

Lífsins lystisemdir

Pjúff!... ég hef aðeins róast síðan á föstudaginn. Pantaði næstum því pitsu og allt. En hvað um það. Kaffi og pönnsur, Stefán Íslandi, Þingvellir uppi á vegg og krossorðaspilið loksins komið í notkun... er eitthvað meira sunnudags? Við fengum meira að segja gesti og áttum kók og smákökur handa þeim. Það þarf sérstaka gráðu til að fá viðurnefnið "ömmurnar"...

2 ummæli:

Þórunn sagði...

Krossorðaspilið??? Nei detta mér nú allar dauðar lýs úr höfði! Guðbjörg mín, þú ert í rauninni fædd 1884!

Nafnlaus sagði...

Takk elsku vinkona fyrir smsið í gær! Við erum fluttar á Leifs og erum voðalega hamingjusamar og glaðar í kreppunni og volæðinu hérna á landinu bláa! Hlakka til að fá þig heim á ný eftir næstum því nákvæmlega 2 mánuði:)