þriðjudagur, 21. október 2008
Jóla jóla...
Ó nei! Það er ófremdarástand í íslenzkri verzlun. Það fæst ekki gjaldeyrir til kaupa á jóladrasli frá Suð-austur Asíu. Haft er eftir verslunarstjórum að það verði VÖRUSKORTUR fyrir jólin. Ég skal leggja mitt af mörkum og senda þeim foreldrum sem ég þekki jóladót til að lauma í skóinn. Ja, hver fer nú að kaupa geit handa einhverjum afrískum greyjum meðan við höfum það svona skítt!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Við ættum frekar bara að kaupa geit handa okkur sjálfum. Við kunnum náttúrulega ekki að mjólka hana eða búa til geitaost, en við gætum horft á hana í staðinn fyrir flatskjáinn sem enginn hefur efni á að gefa okkur.
Mér finnst þetta bara gott mál, venjum okkur á að safna ekki endalausu óþarfa drasli!!
Ást og umhyggja er jólagjöfin í ár:)
Mér þykir verst að geta ekki gefið þér bleika afþurrkunarkústinn sem er svo æðislegur "made in China"!
Nú verður ekki hægt að þurrka af fyrr en eftir kreppu nema smekkurinn breytist þ.e. Eyjólfur hressist!
Æ, leitt er að heyra þetta með afþurrkunarkústinn. Ég get þá ekkert þurrkað af...Púhú. Annars finnst mér að mæður gætu kynnt sig þegar þær gera athugasemdir við blogg barna sinna. Já Tinna, við skulum biðja um geit í sameiginlega jólagjöf heimilisins! Vei!!!
Svo ég rifji nú enn og ný upp hræðilega bernsku mína á Akureyri og Vesturbæ Reykjavíkur á níunda áratugnum: ÉG FÉKK ALDREI Í SKÓINN. Og ég lifði það af. Krakkar verða bara gráðugir aumingjar ef þau fá drasl í skóinn.
Ha ha, já! No more Leikföng erum við!!! Gefa þessu bara sauðkind og þá geta blessuð börnin ræktað myndarlega fjárstofna sem halda lífi í hungraðri þjóð!
Spurning hvað heldur þá lífi í Ching chong china men þegar Íslendingar kaupa ekki lengur jóladrasl...
Þú getur gefið einhverjum lykilinn.
Ég er sammála öllu sem fram hefur komið. Já, ég ætla að gefa Þóru lykilinn í skóinn...
jaeja! er ekki buin ad vera togn i fulllangan tima...nu fer eg ad fara ad taka i hann Brown kallinn ef hann opnar ekki bratt fyrir bloggfaerslurnar!
Annars eru 33 dagar til heimkomu...
Skrifa ummæli