mánudagur, 22. september 2008
Dagar og nætur í millilandavolki
Góðan daginn elskurnar mínar. Í dag er fallegur dagur þó í reynd sé komin nótt. Í gærdag hélt ég í siglingu, og í dag mætti segja að ég sé orðin ansi sigld. Einkum og sér í lagi eftir að hafa dröslað 40 kílóunum mínum, (útbyrðis) í gegnum Lundúnaborg þvera og endilanga, bölvandi, grátandi og slefandi, og mátti ég nú bara þakka fyrir það að vera ekki pissandi líka. Ekki veit ég hvaðan þessi þyngd kom öll sömul en hugsanlegt er hér hafi ab-flex tækinu mínu verið um að kenna sem og íslenzku ógerilsneyddu mjólkinni sem ég fékk í lítravís hjá Jóni bónda á Hóli í Subbuflóasveit norður í Tittlingaskít áður en ég lagði í hann. Jæja, nóg um það. Þetta er allt saman búið og gert. Í hinum mikla Sjittara var allt við sama heygarðshornið; Fólk að bíða eftir strætó, fólk að borða hamborgara, fólk að kaupa tómata, því nú fæst afar fín uppskera þeirra Englendinga í helztu verzlunum á svæðinu, og fólk á gangi með plastpoka. Já þið sjáið nú hvað mannlífið getur verið fjölbreytt. Bæ!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Lundúnir og Sjittið hefur ss bara tekið ljómandi vel á móti þér?
Kannski hefur líka bókasafnið mitt og skópörin, sem ég lét þig bera, haft eitthvað með þyngdina að gera...
;o)
Skrifa ummæli