fimmtudagur, 28. ágúst 2008

G g g g góðann daginn. É é ég heiti Gggg Ggg Gudda

Stamdrottning Norðurlanda er lent og búin að baða sig uppúr kamfórum í allan dag. Þvílíkt lán að vera þeim kostum búina að kunna að stama almennilega og fá styrki til þess að fljúga til Norðurlanda í stamselskap mikla og stama þar lon og don í 3 sólarhringa við gamla vini og nýja. Að maður tali nú ekki um alla norsku gönguskíða stamarana. Jæja, en stamdrottningin hafði það jätte bra í konungsríkinu Svíþjóð þar sem hún hitti meðal annars elg, úlf, Emil í Kattholti og systur sína. Fundurinn við Emil var hið mesta þarfaþing þar er vínylleikgerðin í leikstjórn Helgu Jóns er óvirk eftir að gamli Dualinn hennar mömmu gaf sig. Nú mun hins vegar sænsk útgáfa sama verks, með lestri sjálfrar Ástríðar, stíga á stokk, stytta marga stundina og lina mestu þjáningarnar. Smiðjukofi hoppfallíla!

3 ummæli:

Unknown sagði...

Velkomin heim, vona að ég fari að sjá þig bráðum:)

Nafnlaus sagði...

norskir gönguskíða stamarar ... hljómar spennandi

Nafnlaus sagði...

nú vil ég fara að sjá eitt stamandi gott blogg þakka þér pent!