mánudagur, 11. ágúst 2008
Brjóstumkennanlegur skrokkur
Ég er með misstór brjóst. Ég komst að því fyrir réttum 5 dögum síðan eftir að hafa háð stríð við margan haldarann í áraraðir. Misjöfn sál í misstórum líkama. Ég vil nú ekki meina að það sé of persónulegt hjá mér að brydda upp á þessu máli hér þar er ég vænti þess að mitt vina- og venslafólk hafi nú þegar áttað sig á þessu lýti. Bæklun sem þessi ku vera ansi algeng meðal kvendýra og því spyr ég: Er ekki hægt að fá "Build a Bra"-verslun til landsins alveg einsog "Build a Bear"? Í stað þess að velja sér dýraham og fylla hann nælontroði gæti maður valið sér stakar brjóstahaldaraskálar með því sniði og efni sem best fellur manni í geð, látið þar til gerðan starfsmann troða vatnsfyllingu, sílíkonfyllingu, svampfyllingu (ef maður er púkó) o.s.fr. í þetta og tjasla svo draslinu saman. Kannski væri líka hægt að láta setja munúðarfull ilmefni í haldarana, einkum þau er hafa afródísk áhrif, þó sennilega væri skynsamlegra að geta valið ilmefni eftir hentugleik hverju sinni s.s. afródísk ilmefni á tennisvöllinn, metangaslykt þegar maður er á gangi um nótt yfir Landakotstúnið, karlmannsilm á hommaklúbbana og svo mætti lengi telja. En nóg um það að sinni.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Það var búið að ræða þetta. Sílíkon í minna brjóstið!!!!
Afhverju er í alvöru enginn búin að koma þessu á koppin, þetta er snilldarhugmynd... Ég held bara Gudda mín að þú getir hætt að pæla meira og koma þessari hugmynd á koppinn og haft það svo gott það sem eftir er:)
Skrifa ummæli