Brotabrot úr Sýslumannsdótturinni eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri 1961. Bls. 54-55:
Síðustu geislar sólarlagsins roða sveitina, er Gunnar og Elsa stöðva gæðingana heima á hlaðinu á Grund og stíga af baki. Hið fyrsta sameiginlega ferðalag þeirra er á enda. Elsa strýkur reiskjóta sínum blíðlega um stinnan háls og makka að skilnaði, og réttir svo Gunnari höndina.
"Ég þakka þér fyrir hestlánið, Gunnar. Þetta var yndisleg stund," segir hún næstum hvíslandi.
Gunnar tekur þétt um hönd hennar. "Það gleður mig að þú hefur notið hennar, Elsa." Handabandið rofnar ekki, augu þeirra mætast, engin orð eru sögð, en þögnin í djúpi augnanna talar sínu máli. Þau standa um stund sem í draumi, en svo áttar Gunnar sig og sleppir hægt hönd sýslumannsdótturinnar. Hann hefur ef til vill of lengi notið snertingar hennar, því hann er aðeins kaupamaður á Grund...
miðvikudagur, 13. ágúst 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
bíddu bíddu ... ég hélt að þetta með nýútskrifaða lögfræðinginn væri alveg klappað og klárt og svo er hún bara í einhverjum kaupamönnum.
hvers á þetta lögfræðingagrey að sunnan að gjalda ? eða var ég bara/er ég bara að mis ?
Áttu nokkuð eitthvað með Danelle Steel?
Eða jafnvel DanIelle Steel? ;o)
Bæ ðe vei þá tekur samfellan sig einstaklega vel út í þér á þessari nýju prófílamynd
Mikið er ég farinn að hlakka til einangrunarvistar með þér í Kent-skíri....Þú lætur sorann í Sidcup ljóma....En hvurn andskotann á það að þýða að ignora öll mín símtöl, skilaboð og tilraunir til innbrots í einkalíf (n.b. ekki móðurlíf) þitt????? Mér fer að sárna, hélt við værum sálufélagar....
Fæ ég ekki höfundarlaun fyrir ljósmyndina?
Shit. Þetta kallar maður erótík!!!
Melódramað í restina er eitthvert hið átakamesta í íslenskri bókmenntasögu.
En svona er ástin, og það enn þann dag í dag. Elskendur fá eigi að eigast, og þar sem áður var stéttarmismunur er nú stöðumismunur. Hvað vill maður gefa sig út fyrir að vera, hvert stefnir maður, upp, niður eða til hliðar. Vill maður troða út krakka í gegnum móðurlíf sitt (smitast af ÁG hér), eða ættleiða á gamals aldri þegar lífið hefur fallið í ljúfa löð? Vill maður eiga mann eða konu? Eða hefur maður komist að því að maður er ókynhneigður og kýs að lifa lífi sínu án subbulegs kynlífs og kvabbandi maka? Svo er það Karríerið maður, karríerið...
Guðbjörg esskan. Verðum við að eilífu einar, með misstór brjóst?
Ein búin að tjúna sig upp í bömmer
Víða leynist nú erómantíkin, sei sei já. En þetta er svona með drundina Árni minn, hún ætlar mann lifandi að drepa. Að vísu er ég ekki á samfellunni á myndinni, er barasta á naríunum einsog þú hefur haft veður af lagskona Tinna og tja, það er spurning með höfundaréttinn... hvað viltu fá fyrir hann?
En ég get sagt ykkur það að þessi lögmaður að sunnan reyndist vera hið mesta ómenni, annað en Gunnar kaupamaður, sem er hraustlegur og vinnusamur piltur úr sveit. Sei sei já...
Skrifa ummæli