sunnudagur, 29. júní 2008
Laugardagurinn tuttugastiogáttundi júní tvöþúsundogátta
Hæ. Í dag vaknaði ég klukkan eitt og fékk mér morgunmat. Svo fórum við mamma til London og fórum í stóra bókabúð og mamma keypti eina ferðabók og eina kortabók. Svo fórum við á markað á Piccadilly, sko götunni en ekki torginu, og þar sáum við mikið af flottu dóti. Svo keyptum við okkur nesti á kaffi Neró og fórum með það í Hyde Park. Síðan löbbuðum við lengi um Hyde Park garðinn og sáum dúfur og íkorna og fullt af konum í búrkum. Það var gaman. Svo löbbuðum við niður alla Sloangötu, alveg niður að Sloan square sem er sko torg og þar er rosalega mikið af flottum búðum einsog Gucci og Dolce og Gabbana og dyravörðum í kjólfötum í búðunum sem opna dyrnar fyrir fólkinu. Svo tókum við mamma tubið sem er sko neðanjarðarlestin 4 stöðvar til Embankment og þar fórum við á ítalskan veitingastað sem heitir La Piazza og fengum okkur pitsu. Mín var með reyktum laxi og klettasalati en mamma fékk pitsu með kjúklingi og sveppum. Svo fórum við heim. Bæ.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
"Það var gaman"
ójá
;o)
Guðbjörgin alveg á útopnu að sinna skyldum sínum. Þetta var eitt mesta skyldublogg sem ég hef lesið....enda er bloggsíðan þín skyldulesning. Hefurðu mörgum skyldum að gegna? ÁGJ
HAHA jæja já....þetta minti mig á þegar maður skrifaði í dagbókina sína þegar maður var lítill....skrifaði alveg hve mörg skref ég þurfti að fara hingað og þangað....eða svona næstum því....gaman af þessu....hlakka til að fá þig heim sæta mín!!! kaffi húsið bíður þín og skemmtilegt spjall við vini...hver veit nema við kanski fáum okkur hvítvín saman...
Ímyndunarafl = 0
Frásagnartækni = bágborin
bygging = rislítil
undirtexti = enginn
Vel gert Gudda.... Ertu komin heim?
hehe, þú ert svo fyndin :)
hlakka mega mega til á fim !
ertu þá farin? ertu þá farin frá mér? hvar ertu núna? hvert liggur þín leið? Flosi og Þorfinnur fóru aðeins að óþekktast, svona kanna þolmörkin á nýju heimili, en hafa annars verið til sóma.... þeir biðja annars að heilsa þér, gakktu guði á vald í grátt brókarhald Guðbjörg Ása Huldu-Jónsdóttir!!!!!ÁGJ
Velkomin heim,
og við sjáumst í fyrramálið!! ;o)
Þessi færsla er æði, hehe Þú ert svo mikill snillingur Guddumússikússinn minn! Sé þig ekki á morgun heldur hinn, vei! Tjá, tjá :*
Skrifa ummæli