Það er kominn júní tralalalala! Fyrir löngu síðan tralalalala!
Þið sem ætla að stelast á Hala án mín skemmtið ykkur vel. Ég vona að þið fáið gott veður. Hér er einnig ágætis veður og hljóðar spáin fyrir morgundaginn einhvern veginn svona: Sólskin með hléum, 20°c (12°c að næturlagi), vestanvindur; 15 mílur á klukkustund, rakastig 37. Þarna hafiði það.
Ég er að hlusta á Söngvaseið. Söngkennarinn minn vill að ég einbeiti mér að söngleikjalögum sömdum á árunum frá 1920-1960. Ég á með öðrum orðum að hætta að vera asnaleg og byrja að vera sæt. Það ætti ekki að vera vandkvæðum bundið þar sem ég er afar lagleg í grunninn. Ég ætla að redda mér Carmen-rúllusetti og fölbleikum varalit og þá get ég byrjað að vera dálítið eðlileg einsog stúlkan sagði. En ég get nú sagt ykkur það að ég er komin yfir erfiðasta hjallin því ég er farin að ganga á hælháum skóm. Þetta er svona í bransanum sko, koma þarf að vera fær um ýmislegt. Hælaskórnir mínir eru 3cm háir og Áslaugu finnst ég vera einsog belja í þeim, en hún getur nú líka bara.... tekið þau ummæli aftur þegar hún sér mig stræda um í karekterskónum.
Með allan þennan líka fína tilbúna kvenleika í farteskinu óska ég ykkur, mannkyninu öllu, til hamingju með daginn sem byrjar eftir 56 mínútur. Lifi kosningarétturinn!
miðvikudagur, 18. júní 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
11 ummæli:
Gudda viltu koma heim
Ég er sammála fysta mælanda!! Viltu koma heim...plíííííís....En annars verð ég að segja....mér hefur alltaf fyndist þú vera dama.....eee já....hlakka mega sega til að kynna þér fyrir kaffihúsamenningunni aftur hérna á íslandi...kondu ...
Ég er að koma....!!!! (10 dagar) Er að spássera um Lundúnir með mömmu núna og svo kem ég bara.
Heyrðu, það viðraði aldeilis vel á Smala á Hala. Örugglega afþví þú hugsaðir fallega til okkar.
Hæ ertu með síma sem ég talað við þig í áður en þú kemur?? Mig langar að biðja þig um ofurlítinn greiða nebblega...
Sæt geturðu orðið hróið mitt, en eðlileg verðurðu aldrei....ÁGJ
The uu hills are alive uuhh.. with uh the sound of uhh music, eins og skáldið sagði
Við Þórunn vorum sammála því í dag að við hlökkum mikið til að fá dömuna heim og þræða með henni ölduhúsin í sumar, ó sei sei já.
Oh, mikið afskaplega hlakka ég til að hitta ykkur krúttin mín. Og Klessugreyið mitt: þetta verður alltílagi þegar við komum heim því þar þekkjast engin ofnæmi. Þar er allt gott. Fjarlægðin gerir fjöllin blá....
ha ha, eðlileg verðurðu aldrei! Það er rétt, enda er svo óendanlega miklu betra að vera óeðlilegur! Bið að heilsa henni mömmu þinni, hún veit sem er að nú fer ég að verða aftur eins og grár köttur á Reynimelnum! Sjáumst gamla....
mér hefur alltaf þótt kvennleikinn skína af þér...og ég meina það
Skrifa ummæli